15. ágúst 2007 klukkan 12:12
Þá er ég tilbaka. Ég hef ekki alveg verið dugleg við að blogga. En mikið er gaman að sjá þegar fólk er að commenta :)
Það er allt á fullu í skólanum hjá mér, á morgun eigum við að skila uppkasti að matseðlinum sem á að vera í lokaverkefninu.
Í dag gerði í consomme julienne( sem er súpa með julienne skornu grænmeti) Það gekk vel, fyrir utan að julienne grænmetið var örlítið of stórt.
Svo gerði ég Osso buco, sem er braseraður kálfaskank, hann gekk mjög vel...
Ég er ekki búin að gera neitt rosalega mikið, bara kíkja í bæinn og rosengaard.
Núna er Simon farin heim til foreldra sinna i Esbjerg, svo núna nýti ég heldur betur tímann til að læra...það er ekki mikið annað að gera.
Það er byrjað að rigna aftur svo það hefur kólnað aðeins, sem er kannski bara gott...Það var frekar erfitt að sitja og læra í 25 stiga hita.
Svo um helgina er það kaupmannarhafnarferð og mig hlakkar mikið til. Við ætlum að hafa sushipartý saman. Unnur og Danni koma líka frá kolding.
Jæja ég er farin að klára þennann blessaða menu.i
Elísabet Ţorvarđardóttir
08. ágúst 2007 klukkan 06:41
Ég er bókstaflega að kafna....það er alltof heitt til að sitja inn í skóla. Hvað þá í loftlausri tölvustofu. En núna er ég að leggja loka höndina á fyrirlesturinn sem ég á að flytja á morgun.
Tíminn líður bara alltof hratt hérna, það er bara að fara að koma helgi strax aftur.
Í gær eftir skóla skelltum ég og Simon okkur að veiða, það var ekkert smá fínt fyrir utan það að við veiddum ekki neitt. Ekkert smá kósý að sitja í hitanum og veiða.
Ég var svo þreytt eftir daginn að ég sofnaði kl 22 í gær :)
Núna þarf ég að fara að verða duglegari við að leita mér að íbúð og vinnu. Sérstaklega þegar tíminn líður svona hratt.
Jæja ég ætla að fara að fínpússa fyrirlesturinn minn svo að ég fái nú 12 fyrir hann.
Elísabet Ţorvarđardóttir
06. ágúst 2007 klukkan 06:46
Þessi helgi var heldur betur viðburðarík. Á föstudag fór ég og leigði bíl, svo að ég gæti farið til Árósa að sækja dótið mitt. Svo ég og Simon fórum í roadtrip til árósa fórum um kl 17 og vorum komin til baka um 21...Það var ótrúlega skrítið að koma til Árósa án þess að vera að hitta Guðrúnu og co.
Á laugardeginum var bílinn nýttur, ég og simon fórum með birgðir af flöskum í talningu. Seinna um daginn fór ég með Atla, Þránni og Marcus í rosengaardcenter að versla...
Ég og Þráinn skelltum okkur svo í bæinn um kvöldið, hittum þar Simon og Daniel.
Á sunnudag nýttum við okkur bílinn aftur og við skelltum okkur á ströndina því það var 27 stiga hiti og heiðskýrt...frábært veður. Simon tókst að plata mig mig í sjóinn eftir að hafa talað mig til í langann tíma. Mér fannst þessar öldur ekkert svaka heillandi...en ég lét mig hafa það. Sjórinn var reyndar frekar kaldur svo ég óð upp að maga og fór svo upp úr.
Í gærkvöldi gerðum ég og simon okkur sushi aftur :) við erum orðnir algjörir sushi meistarar. Og já Embla við þurfum að finna helgi sem við getum hisst til að gera sushi :)
Núna er ég orðin bíllaus en komin með þetta fínasta hjól :) Þvílíkur munur að vera komin með hjól.
Elísabet Ţorvarđardóttir
02. ágúst 2007 klukkan 09:28
Jæja gaman að sjá að það er einhver sem fylgist með :)
Núna er ég í skólanum, við eigum að gera verkefni í dag sem við förum svo í munnlegt próf í næstu viku í. Það er svo ekki verið að dóla við að koma manni í gang :)
En þetta verkefni sem ég valdi mér var fiskur og norænn matur, eða fiskur sem norrænn matur. Ég mun fjalla almennt um fisk, almennt um norrænnan mat og svo þetta blandað saman. Hvaða norræna meðlæti passar med fisk. Þetta er mjög spennandi verkefni, það er bara aðeins of erfitt að byrja, það er svo margt sem mig langar að fjalla um.
Í gær var ég svo í verklegu, ég átti að gera forloren and og amagerkoteletter. Það gekk bara vel, nema ég gerði sömu vitleysu eins og allir hinir að ég var með alltof mikla sósu með amagerkoteletten.
Jæja nóg um skólann, í dag ætla ég í bæinn eftir skóla. Ég þarf að stússast í pósthús og svoleiðis. Í kvöld er ég og simon að fara að gera okkur sushi, með hvítvíni og alles, svaka huggó :)
Á morgun er svo förinni heitið til Árósa að sækja langþráð hjól, sem Guðrún systir var svo sæt í sér að lána mér :) takk Guðrún. Svo er ég að fara að sækja skólabækurnar mínar.
Jæja held að það sé best að halda áfram með verkefnið mitt...svo að ég fá ekki -3 ( já það er kominn nýr einkunnarskali í dk, segi meir frá honum seinna)
Elísabet Ţorvarđardóttir
31. júlí 2007 klukkan 16:28
Hæ allir...jæja ég er þá enn og aftur byrjuð að blogga. Ákvað að byrja aftur svo að þeir heima á íslandi geti frétt af mér á loka önn minni í skólanum :)
Ég kom til Danmerkur á sunnudag, var samferða Þránni frá Íslandi.
Það er ótrúlega skrítið að vera komin aftur hingað. Ég er sem betur fer ein í herbergi :) það eru reyndar voða fáir mættir á heimavistina, vona bara að það haldist svona.
Ég hef voða lítð merkilegt gert síðan ég kom hingað, jú ég fór og keyptir handklæði og sængurföt ;)
Ég var svo í verklegu í dag, mér gekk bara vel, ég átti að gera rétt sem heitir carapulka ( pottréttur með svínakjöti, pulsum, bacon) voða eitthvað gamaldagsréttur. Svo hinn rétturinn sem ég gerði var svínakótiletta með pommes sautes...sósan var ekki alveg eins og ég vildi, ég er reyndar rosa léleg í sósugerð.
Jæja ég ætla að fara að veiða kóngulær...bið að heilsa adios
og endilega skilið kveðjum á mig ;)
Elísabet Ţorvarđardóttir