28. nóvember 2007 klukkan 09:54
Loksins kem ég með nýtt blogg :)
Ég er búin að vera voðalega busy síðustu vikur, Mamma og Björg komu í heimsókn til mín. Svo er ég að vinna 60 tíma á viku.
Það var alveg æðislegt að fá mömmu og Björg í heimsókn, ég lærði hvernig maður á að versla fullt af jólagjöfum á mettíma...held að ég hef aldrei haldið á svo mörgum pokum á svona stuttum tíma. Það var svo gaman að hafa þær hér.
Við fórum út að borða, kíktum á H.C. Andersen hverfið, kíktum í dómkirkjuna. Og borðuðum fullt af nammi. Og núna er orðið voða heimilslegt hjá mér, mamma og Björg voru svo myndarlegar að þær hjálpuðu mér við að setja upp gardínurnar og hjálpuðu mér við að punta hér...svo núna er íbúðin farin að líkjast heimili.
Ég keypti mér svo hjól meðan þær voru hjá mér. Það er ekkert smá flott, svona ekta gamaldagshjól, ég sit svona alveg upprétt þegar ég hjóla. Það er með körfu :)
Annars hefur voða lítið gerst hjá mér, ég er bara að vinna á fullu. Núna eru jólahlaðborðin á fullu, svo við fáum um 1000 gesti um helgar í des, þá 1000 manns á einum degi, það er það mesta sem ég hef eldað fyrir.
Jæja ég ætla að fara að nýta þennann eina frídag í viku í að gera eitthvað að viti, fara út í bæ á hjólinu mínu :)
Elísabet Ţorvarđardóttir
31. október 2007 klukkan 23:53
Úff...blogga já...
Er búin að vera atvinnulaus aumingji í næstum 3 vikur...þanngað til að stelpa(Anne Marie) sem var með mér í bekk reddaði mér vinnu. Þetta er hótel(Torvehallerne) sem liggur í Vejle. Svo ég pendla klukkutíma hvora leið á hverjum vinnudegi.
Ég er að vinna um 50 tíma á viku sem er ágætt, fínt að safna smá yfirvinnutímum eftir að hafa verið svona atvinnulaus.
Svo í miðjum nóv þá byrja Julefrokost hlaðborðin svo það verður ágætt að gera. Ég er ennþá bara að komst inn í rútinuna, þegar souchefin er farin þá er ég yfir...svo í kvöld var ég ein með 30 manna hóp, gekk bara mjög fínt enda bara 2ja rétta.
Seðilinn a cartinu þarna er rosalega niðrá jörðinni...rosa mikið af þessum klassisku dönsku réttum.
Ég vinna frá 12-22 flesta daga...en þar sem ég næ fyrst lest kl 22:42 þá er ég komin heim til mín um miðnætti. Áðan þegar ég kom úr lestinni tók á móti mér svaka hópur af fullum strákum...og fullt af löggubílum, en það var víst fótbolta leikur. O.B. á móti Bröndby...við (odense) töpuðum víst.
Svo um daginn var Maríu sys í heimsókn..og það var alveg frábært að hafa hana, sakna hennar ekkert smá...vantar einhvern til að skrifa á sófann minn ;)
Svo kemur Mamma og Björg til mín 18. nóv og ég fékk frí í vinnunni allann tíman meðan þær eru hér :) sem er bara snilld.
Jæja ég ætla að fara að lúlla...þarf að vakna snemma, til að fara í bankann áður en ég tek lestina.
Bæ og góða nótt....
Elísabet Ţorvarđardóttir
14. október 2007 klukkan 11:38
Jæja er ekki tími til komin á að blogga...Nú er ég orðin matreiðslumaður og takk kærlega fyrir allar kveðjurnar :)
Ég fékk á íslenskum skala 8-8-9...8 í verklega og 9 í munnlega. Þar af leiðandi útskrifaðist ég með ljáði.
Ég er annars flutt inn í íbúðina mína, hún er rosalega fín...mig vantar reyndar fleiri húsgögn og puntidót en það kemur bara með tímanum.
Hjólinu mínu var stolið meðan ég skrapp inn í búð :( svo núna er ég að leita af nýju.
Annars hefur ekki mikið meira gerst, og María Ósk er svo að koma á fimmtudag og ég get ekki beðið, það verður svaka stuð.
Jæja ætli ég verið ekki að fara að gera eitthvað af viti
Elísabet Ţorvarđardóttir
02. október 2007 klukkan 10:26
Verklegt sveinspróf á morgun og munnlega á fimmtudag.
Hef ekkert meira að segja.
Elísabet Ţorvarđardóttir
25. september 2007 klukkan 20:13
Jæja mín bara orðin árinu eldri...Jáb bara orðin 27 ára...Ég átti alveg æðislegan afmælisdag, eða daginn fyrir. Því að ég og Simon héldum upp á afmælið mitt deginum fyrir afmælið mitt. Við byrjuðum daginn á að sofa út lengi, fórum fyrst á fætur um eittleitið. Svo fórum við að versla fyrir kvöldmatinn. Við dúlluðum okkur saman við að búa til sushi, það er mjög gaman þegar fólk nennir að hjálpa manni í eldhúsinu.
Svo var lagt á borð með kertaljós með hvítvín og flott heit. Og sko slökkt á sjónvarpinu :) Svo sátum við að borða í marga klukkutíma. Svo í dessert vorum við með bananasplitt. Svo sátum við að kjafta og sötra vín til kl 4 um nóttina. Ekkert smá kósý.
Ég fékk svo þessa fínu æfmælisgjöf frá honum, fékk geðveikt flotta friis og company tösku og geisladisk.
Svo fékk ég peninga í æfmælisgjöf frá mor og far, ömmu. Frá systrum mínum fékk ég svo kavasaki skó sem ég á eftir að kaupa :) Frábær afmælishelgi, en samt leiðinlegt að vera í burtu frá familíu og vinum.
Ohhh ég er komin með 3 mýbit og ég er ekki góð í að klóra mér ekki...hata mý!
Svo styttist bara í verklega og munnlega sveinsprófið...úff....
Unnur mín ætlar að koma á föstudag til mín og eyða með mér helgini :) Það verður æði að fá hana hingað.
Já gleymdi að segja að ég er núna komin í herbergi saman með bekkjarsystur minni, það voru svo margir að koma á skólaheimilið að núna verða allir að búa 2 saman í herbergi...gubb það er leiðinlegt, maður á ekkert privat líf, en sem betur fer er þetta bara í rúma viku.
Jæja ég er farin að klóra mér í mýbitin
Elísabet Ţorvarđardóttir
17. september 2007 klukkan 19:57
JEYYYY!!!!!!!! Þá er ég búin að skrifa lokasveinsprófsritgerðina( vá langt orð) mína. Hún átti að vera 15 siður fyrir utan aukaefni eða 25.000 anslag( veit ekki hvað það heitir á íslensku) Ritgerðin mín endaði í 25.081 eða í allt 27 síður. Svo dagurinn í dag fór í að prenta hana út og binda saman, ég þurti að prenta hana út í 6 eintökum svo þetta tók smá tíma... Nú er ég hálf eirðarlaus, þegar maður hefur setið stíft í heila viku að skrifa ritgerð þá finnst ég vera að svindla núna að vera ekki að læra. En Atli og Gísli nenntu að eyða kvöldinu með mér, við fórum út í sjoppu, keyptum slik og fórum svo heim að horfa á video. Já svo er ég komin með íbúð :) fæ hana 1 okt, en ég ætla ekki að flytja inn fyrr en sveinsprófið er búið sem er 4 okt. Eina vandamálið er að ég á EKKERT inn í hana...ekki einu sinni rúm :) Svo núna er ég á fullu á gul og gratis og kíkja á ódýrt dót. Já og svo vantar mig bara vinnu, þá er þetta allt að koma. Jæja ég ætla að fara snemma að sofa, vantar upp á smá svefn hjá mér |
|
Elísabet Ţorvarđardóttir
07. september 2007 klukkan 17:52
Þá er komin helgi enn og aftur...Svo á mánudag tekur alvaran við...Sveinsprófsverkefni, við drögum verkefnið kl 10:20 og eftir það höfum við viku til að skrifa um 30 síðna ritgerð...svo ég ætla að fara að versla á morgun og svo mun ég bara loka mig af á mánudag...nema þegar ég fer í pilates á þriðjudag. Já ég er byrjuð að æfa pilates, vá það er ekkert smá gaman og nei Þráinn þetta er ekki meðgönguleikfimi!
Svo þvi miður Katrín þá get ég ekki hitt þig í köben, því ég verð á fullu í sveinsprófverkefni.
Ótrúlega spurningar sem ég fæ alltaf af þessum blessuðu dönum, ég hlýt að ganga í hræðilegum fötum því ein stelpan í bekknum spurði mig hvort það væri hægt að kaupa alminnileg föt á íslandi...ég sagði bara nei við saumum fötin okkar sjálf, eða kaupum þau í danmörku...
Svo er ég með svart boxy strokleður eins og held ég allir þekkja á íslandi. Þetta strokleður hefur komið oftar en einu sinni í umræðu í skólanum...það hefur enginn séð SVART strokleður áður...alveg hreint merkilegt svona svart hehehe.
Í gær var svo grillveisla, það var bara fínt. Einhverjir útileikir eftir grillið og svo var bara farið á barin í kjallaranum. Þráinn stóð sig vel á myndavélinni...kannski hann setji myndirnar á bloggið sitt ;)
Í kvöld er menningarnótt í odense, svo við íslendingarnir ætlum aðeins að kíkja.
Já ég var að fá miðannareinkunn fékk 9...sem er fínt...
Jæja þá ætla ég að tjekka á strákunum.
Elísabet Ţorvarđardóttir
28. ágúst 2007 klukkan 21:19
Já ég verð eiginlega að tilkynna dauða Línu( sem hét í höfuðið á henni Randalínu Emblu og Eiríksdóttir)...Þó að greyið hafi verið vellyktandi þá var hennar tími kominn. Símon kom hérna í gær og fór að ráðum Eiríks...eða gerði bara eins og allir aðrir...tók stykki klósettpappír(ekki eldhús,er nebbla ekki með eldhús) og hirti Línu og sturtaði henni niður klósettið. En eftir þessa aðgerð þá er þessi svarta fallega lína ( klessa) í loftinu eftir hana Línu.
Og já Eiríkur ég hugsa bara svo mikið að eitt herbergi dugar mér ekki...stundum fer ég meira segja fram að hugsa...:)
Annars engar fréttir nema er að fara að halda fyrirlestur á morgun, sem á að vera æfing fyrir sveinsprófið...jeyy..HATA fyrirlestra...til hvers í ósköpunum þarf ég að læra að halda fyrirlestur....langar það ekki og ætla að mótmæla.
Svo annaðkvöld er ég og Carina að fara heim til Söru (Sarah) að elda okkur saman og lesa saman fyrir prófið á föstudag.
Jæja ég ætla að fara að lúlla...
Og já Takk fyrir commentin, ég elska að fá komment :) þá fæ ég alltaf löngun til að blogga meira ;)
Elísabet Ţorvarđardóttir
26. ágúst 2007 klukkan 18:47
Hmm enginn sem hefur commentað :(
Síðustu helgi fór ég til köben til Eika og Emblu, það var alveg rosalega gaman. Unnur og Danni komu líka. Við gerðum þetta ljómandi sushi og keyptum meira að segja hrísgrjóna vín með...sem reyndar fór niður vaskinn. Það var alveg ótrúlega ógeðslega vont...
Lína kónguló býr ennþá hjá mér...hún reyndar flutti sig um set þegar ég var í köben...svo í 2 daga fann ég hana ekki. Svo einn daginn þegar ég sat á klósettinu að hugsa þá leit ég upp og þar var lína búin að koma sér fyrir. Ég var ekki beint sátt við hana, við höfðum aldrei rætt um að hún fengi að vera inn á klósetti svo ég tók ilmvatnið mitt og spreyjaði 3 sinnum á hana...Hún bifaðist rétt svo.
Ég nennti svo ómögulega að hafa vellyktandi kónguló á baðinu hjá mér, horfandi á mig hvert skipti sem ég fer á klósettið. Svo ég tók sturtuhausinn og ákvað að skola henni í burtu...það tók svona 15 mín og fullt af vatni að ná að skola henni áfram. En svo illa vildi til að hún skolaðist bakvið ofnin minn.
Ég ákvað að hætta alveg viss um að blessuð lína væri drukknuð. Neib næsta dag kem ég inn á herbergi og sé að lína ódauðlega er búin að koma sér aftur fyrir í sama hornið og venjulega.
Ætli ég leyfi henni ekki að hanga þarna meðan hún heldur sér á sama stað. Hún lyktar líka svo vel.
Svo er mánudagur á morgun og ein önnur vikan að byrja...nóg að gera. Á morgun í verklegu erum við með skeldýr...það er alltaf gaman.
Jæja ég ætla að halda áfram að leika mér á leikjaneti, það er jú sunnudagur :)
Elísabet Ţorvarđardóttir
16. ágúst 2007 klukkan 19:27
Kamstykke, nakkekam, culotte, hals...braiseret, kogt, helstegt...úff þetta snýst allt um í hausnum á mér...Er að fara í próf á morgun í svíninu, nautinu og kálfinum. Er búin að læra kálfin utan af, er hálfnum með svínið.
Ég fór í dag og fékk skattakort...það var samt smá vandamál því ég veit ekki hvað ég mun fá í laun út árið. Þá fór allt í klessu hjá konunni sem var að afgreiða mig. Hún gat bara ekki skilið að ég vissi ekki hvað ég mun gera eftir 2 mánuði. En ég fékk skattakortið að lokum með því loforði að ég mun koma og skipta um skattakort um leið og ég veit hvað ég fæ í laun.
Í dag vorum við í valfagi...ég dró innmat ásamt 2 öðrum, við ákváðum að gera svínasultu saman og svo gera svínakjálka í sitthvoru lagi. Ég tók kjálkana mína og braisereði þá. Tók epli og sauð í sykurlegi. Bjó til selleri puré. tók selleri og skar það út eins og eplin, setti selleriið í boulion og inn í ofn með timian. Þetta heppnaðist mjög vel og kennarinn minn var mjög hrifinn af þessu, sérstaklega selleríinu og eplunum.
Svo á morgun er aftur consommé og kálfakótiletta.
Það verður fínt þegar dagurinn á morgun er búin því þá er það köben :)
Jæja ég ætla að heilsa upp á línu kónguló ( risavaxin kónguló sem hangir alltaf í einu horninu í "forstofunni" hjá mér).
Elísabet Ţorvarđardóttir