Íslandsferð
Komin aftur til Odense og hversdagsleikinn er tekinn við...
Ég var semsagt í sumarfríi í 2 vikur heima á íslandi, ég gerði alveg ótrúlega margt, nenni ekki að segja frá því í smáatriðum, og þar sem að ég þjáist af krónisku minnisleysi þá man ég líklegast ekki allt.
En hér er fríið í hnotuskurn:
#Fór á Kano og Kajak á Hafravatni
#Fór upp í bústað yfir versló, elska að vera þar
#Fór á Hestbak
#Hitti Unni og Bábu og við heldum stelpukvöld, sáum mamma mia og fórum út að borða
#Hékk með systrum mínum
#Fór í matarboð til Katrínar frænku, sem eldaði æðislegt pasta
#Fór austur til Elsu systir mömmu
#Og slappaði af fullt :)
Þessar tvær vikur voru bara alltof fljótar að líða...svo ætla ég að reyna að fara til ísland yfir jól.
Ég ákvað að taka með mér mysing, vogaídýfu og pylsur heim frá íslandi. En þar sem að ég þjáist að krónisku minnisleysi og mamma var ekki heima þegar ég fór, þá gleymdi ég þessu öllu í ísskápnum heima hjá mömmu og pabba. Og Svo gleymdi ég náttúrulega gallajakkanum mínum heima hjá Katrínu, svo ég held í hefðina að gleyma hlutum heima á íslandi.
Jæja ég ætla að fá mér eitthvað að borða áður en ég gleymi því.
Endilega commenta svo, annars finnst mér að enginn lesi þetta :)

Þú getur náð í þetta um jólin!