Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

30 stiga hiti og skínandi sól

26. júlí 2008 klukkan 18:32

Úfff...það er alltof heitt...í dag var 30 stiga hiti, og ég var að vinna. Það er ekki gott að vera að vinna inn í heitu eldhúsi með 6 eldahellur á fullu og 30 stiga hiti úti og við erum í glerbygingu. Svo ég alltaf ef ég þurfti að fara niður í frystinn þá tók ég mér alltaf góðann tíma þar :)
Við fengum svo ágætan slatta af vespum inn til okkar, ég er bara skíthrædd við þær svo ég fékk strákana til að drepa þær fyrir mig.
Drakk líka marga lítra af vatni í dag, held að ég hafi svitnað helminingnum.
 Núna er ég komin heim úr vinnu og það er ekki betra hér inni...ég er með alla glugga galopna...það fer vonandi að kólna aðeins núna þegar það er komið kvöld.
Svo í síðustu viku fór ég til augnlæknis til að sjá hvort að ég geti farið í laseraðgerð, og ég get það :) Eina er að ég er með frekar stór sjáöldur svo að kvöldsjónin gæti truflast smá, en það eru bara litlar líkur. Svo núna vantar mig bara 300 þús :) ef einhverjum langar að losna við þann pening þá má hinn sami alveg gefa mér þann pening :)
Ég er svo að koma heim til ísland á mánudagskvöld...og verð í heilar 2 vikur, ég er enn með sama síma heima ;)
Jæja ég ætla að hoppa í ískalda sturtu til að kæla mig aðeins.

Elísabet Þorvarðardóttir

Skrifa athugasemd