Internet gella
03. júlí 2008 klukkan 16:15
Til hamingju Beta!!!
Þá hef ég gerst internet eigandi...var orðin net pirruð á að netið hjá nágrönnunum var ekki að virka alltaf :) ég nefninlega "stal" þráðlausu neti hjá fólki hér í kring....
Annars er sumarið komið aftur, danir kalla það ekki sumar hér nema það sé yfir 25 stiga hita...iss...vanþakklætið í þeim.
Annars er nóg að gera hjá mér...að vinna 37 tíma á viku hehehehe og leika mér restina.
Ég var með sjúkling niðrí vinnu um daginn sem má alls ekki fá neitt salt í matinn, og vá hvað það er erfitt að fá mat til að bragðast alminnilega án salt. Ég reyndi að nota allskonar krydd...það var verst með sósurnar, því að ég gat ekki notað soð, því það er salt í því. Svo ég var að búa til sérsoð mínus salt = bragðlaust. Svo setti ég pipar og allskonar krydd...en það vantaði alltaf þetta ekstra semsagt saltið. En þessi sjúklingur var æði, hann þakkaði mér alltaf fyrir matinn og í dag var hann útskrifaður og kom og kvaddi mig.
Svo var ég með annann sjúkling sem má liggur við ekkert borða, ekki mjólkurafurði, ekki lamb, ekki sjávarafurði...og margt fleira.
Svo á hverjum degi fæ ég að gera alls konar mat. Svo vantar okkur kokk frá 1.sept til janúar með möguleika á fastráðningu...ef einhverjum vantar vinnu ;)
Jæja ég ætla að fara að hjóla út í búð þó að ég nenni því ekki í þessum hita, langar bara að liggja í inni í skugganum. En maður verður víst að borða :)
Knús á alla

Elísabet Þorvarðardóttir