Margt að gerast
Þá er loks komin tími til að blogga.
Það er margt að frétta af mér...laugardaginn 7.júni missti ég elsku ömmu mína. Sakna hennar á hverjum degi, hún var besta amma í heimi.
Vegna fráfalls hennar þá fór ég heim til íslands 13 júni og var fram til 22 júni.
Þetta voru erfiðir dagar að kveðja hana en það var gott að koma heim til fjölskyldunar og vera hjá þeim á þessum dögum.
Það var margt að gera þessa daga heima, 17.júní hélt Kristján frændi og Jóna kona hans opið hús vegna brúðkaups þeirra fyrr í mánuðinum, sama dag varð Björg systir mömmu 60 ára svo við kíktum í æðislega veislu til hennar.
16 júni átti unnir svo afmæli og þar sem var boðið upp á allskonar drykki og áfengt hlaup...en ég var ekki alveg í stuði til að skemmta mér svo ég stoppaði stutt.
Síðustu daga mína á íslandi kíkti ég með mömmu, pabba og Maríu upp í bústað og það er svo gott að koma upp í bústað, vildi óska að ég gæti farið þanngað hverja helgi.
Svo flaug ég heim 22 júni, mamma og pabbi keyrðu mig upp á flugvöll mjög snemma morguns(mætti kalla það nótt). Ég kveð mömmu og pabba og segji við mömmu að ég hafi verið að fylla á inneignina á símann svo ég myndi hringja seinna. Ég fer upp í fríhöfn, kíkji í búðir og dúlla mér. Svo ákvað ég að setjast niður og hringja í mömmu...en nei þá fattaði ég það að ég hafði skilið símann minn eftir í baksætinu í bílnum hans pabba...svo ég fór að leita að næsta tíkallasíma, sem var ekki auðvelt þar sem enginn notar svoleiðis lengur. Fann hann á endanum og hringji í mömmu. Þau bjóða mér að snúa við ( þau voru komin langt til reykjavíkur). Þau snúa við og mamma hleypur með símann inn, og strákarnir í öryggislhliðinu taka við símanum og rétta mér hann...Úff það er ótrúlegt að maður gat ferðast áður án þess að eiga gsm síma.
Núna er ég komin til baka til odense, embla kíkti til mín í gær og við skelltum okkur á Sex and the city í bíó, mjög fín mynd.
Svo er ég að fara að vinna um helgina....verkfallið hætt svo allt komið á fullt aftur.
Simon var að klára síðasta prófið í dag, hann er að taka bacholor í stjórnmálafræði með sögu, og hann er búinn að fá 2 einkunnir hann fékk 12 og 10 (12 er hæðsta einkunn og 10 næsthæðsta) svo honum hefði ekki getað gengið betur.
Jæja ég ætla að reyna að gera eitthvað að viti í dag....og reyna að vinna á þessa smá heimþrá sem er aðeins að angra mig.
