Paradis ís og sumar
Þá er sumarið komið. 17 stiga hiti í gær og á morgun á að fara yfir 20 stiga hita...Fyrir mér er það sumar þó að danir segja að það sé bara vor...Þó að ég hafi hangið svona lengi í danmörku þá hef ég ekki verið yfir heilt sumar síðan ég og Embla vorum í holstebro árið 1998 minnir mig.
En síðustu helgi komu Unnur og Embla til mín og gistu eina nótt. Ekkert smá gaman að hafa þær, við vorum bara eins og í gamla daga, leigðum dvd, keyptum nammi og slöppuðum af. Kynntumst íslending út í Fakta...hehehe.
Það var svo gaman að hafa þær að ég vildi að þær gætu bara alltaf verið hér :) Og Embla það er dýralæknastofa í næstu götu :) "blink blink"
Því það er svo gott veður og það er laugardagur, þá fór ég út áðan og keypti besta ís í heimi. Paradís ís...nammm.
Svo styttist í að María Systir komi. Hún kemur 17 mai og fer heim 30 mai. Get ekki beðið eftir að hún kemur, þá verða daglegar ferðir út í paradís ís...hehehe.
Jæja ég ætla að fá mér að borða svo að ég geti fengið mér ís í dessert, eða ætti ég kannski bara að fá mér ís í matinn :)

-María Ósk