Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Þjófur

11. apríl 2008 klukkan 18:37

Úff hvað ég er búin að vera dugleg í dag. Kom beint heim eftir vinnu og fór að þvo þvott og ákvað svo að taka íbúðina alminninlega í gegn...ryksugaði loftið eins og venjulega. Það kemur alveg ótrúlega hratt kóngulóavefur hér...og ég sé einstaka sinnum kónguló. Ég er viss um að um leið og ég sofna þá fara þær á fullt og spinna vef út um allt. Ógeð.
Ég á mér víst leynda þjófa hlið. Því í vikunni þá vaknaði ég upp um miðja nótt og sagði við Simon á dönsku : "Ertu með?" og hann sagði :"ha?, hvað ertu að tala um" ég: " Ertu með í að ræna búðina?" hehehe já og ég man ekkert eftir þessu. 'Eg stunda þetta víst að tala upp úr svefni en þetta er það fyndnasta sem ég hef heyrt að ég hafi sagt.
Ég hef víst gert ótrúlegustu hluti eins og pilla myndir niður af vegg, skrúað peru úr lampa...og ég man ekkert eftir því þegar ég vakna. Pínu óhugnanlegt.
Ég hef það frábært í nýju vinnuni, á þriðjudag var ég beðin að vera eftir vinnu og vera með í að stjórna Bingo :) ég átti víst að tjekka þegar fólk kallaði bingo, þá átti ég að fara til sjúklilngsins og átti að kalla tölurnar upp svo stjórnandinn gæti tjékkað hvort allt væri rétt. það var fínt, og eins gott að vera með tölurnar á hreinu :)
En það var rosalega gaman að fá að vera með í félagslífi sjúklingana, þá kynnist maður þeim betur sérstaklega þeim sem eru hjá okkur í nokkra mánuði.
Jæja ég ætla að hlúnka mér fyrir framan tv með hindberjacola og hafa það kósý.
 

Elísabet Þorvarðardóttir
Jei þú ert komin aftur! :) Vertu nú duglegri að blogga kona!

P.s. Mitt blogg er bara í smá vorhreingerningu - kemur aftur þegar 123.is er búið að taka til í kerfinu sínu. :) Þá geturðu lesið áfram um mitt viðburðaríka líf (haha) og KOMMENTAÐ svona af og til ... ;)
15. apríl 2008 klukkan 20:49
já ég ákvað að halda áfram að leyfa ykkur íslendingum að fylgjast með. Já láttu mig vita þegar þú byrjar aftur :)
16. apríl 2008 klukkan 13:31
Guðrún Erla
 
Hæhæ

Takk fyrir að senda peysuna, hún er voða fín.

Hvernig smakkast eiginlega hindberjacola????

Kveðja Gudda stóra syss
19. apríl 2008 klukkan 01:23
Ekkert mál Guðrún. Hindberjacola er geðveikt gott. Embla er reyndar ekki alveg sammála mér...Þetta er gos með hindberjabragði....nammm....á einmitt eina flösku inn í ísskáp. Þetta er eitt af ódýra cola sem fæst i netto og fakta og svoleiðisbúðum og kostar 3 kr uden pant :)
19. apríl 2008 klukkan 11:34
Helga Sörensdóttirnammm mig langar í hindberjacola!! er það ekki bara svona eins og dr pepper?eða cherry cola? nammm
2 vikur í sveinspróf hjá mér!!!!!!!!!!!
24. apríl 2008 klukkan 20:06
Beta
 
Eg veit ekki...hef ekki smakkad dr.pepper eda cherry cola :) Vinkonu minni fannst tetta bragdast eins og hlaup hehehe enda er tetta glær og bleikur drykkur :)
En eg veit ad tu att eftir ad brillera i tessu profi...
25. apríl 2008 klukkan 13:36

Skrifa athugasemd