Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Vinna og heimsókn

28. nóvember 2007 klukkan 09:54
Loksins kem ég með nýtt blogg :)
Ég er búin að vera voðalega busy síðustu vikur, Mamma og Björg komu í heimsókn til mín. Svo er ég að vinna 60 tíma á viku.
Það var alveg æðislegt að fá mömmu og Björg í heimsókn, ég lærði hvernig maður á að versla fullt af jólagjöfum á mettíma...held að ég hef aldrei haldið á svo mörgum pokum á svona stuttum tíma. Það var svo gaman að hafa þær hér.
Við fórum út að borða, kíktum á H.C. Andersen hverfið, kíktum í dómkirkjuna. Og borðuðum fullt af nammi. Og núna er orðið voða heimilslegt hjá mér, mamma og Björg voru svo myndarlegar að þær hjálpuðu mér við að setja upp gardínurnar og hjálpuðu mér við að punta hér...svo núna er íbúðin farin að líkjast heimili.
Ég keypti mér svo hjól meðan þær voru hjá mér. Það er ekkert smá flott, svona ekta gamaldagshjól, ég sit svona alveg upprétt þegar ég hjóla. Það er með körfu :)
Annars hefur voða lítið gerst hjá mér, ég er bara að vinna á fullu. Núna eru jólahlaðborðin á fullu, svo við fáum um 1000 gesti um helgar í des, þá 1000 manns á einum degi, það er það mesta sem ég hef eldað fyrir.
Jæja ég ætla að fara að nýta þennann eina frídag í viku í að gera eitthvað að viti, fara út í bæ á hjólinu mínu :)
Elísabet Þorvarðardóttir
Hey þú verður nú að skella inn mynd af fína hjólinu! ;)
29. nóvember 2007 klukkan 21:26
Brynhildur Ásta
 
Híhí til hamingju með nýja hjólið :) Já mynd... helst að fá einhvern til þess að taka mynd af þér á hjólinu :p
30. nóvember 2007 klukkan 20:10
Helga Sörensdóttirkemurru ekki heim 17.des?
ég var að hjálpa í jólahlaðborði á argentínu í kvökld! svaka stuð!
08. desember 2007 klukkan 02:40

Skrifa athugasemd