Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Matreiðslumaður og hjólinu stolið

14. október 2007 klukkan 11:38

Jæja er ekki tími til komin á að blogga...Nú er ég orðin matreiðslumaður og takk kærlega fyrir allar kveðjurnar :)
Ég fékk á íslenskum skala 8-8-9...8 í verklega og 9 í munnlega. Þar af leiðandi útskrifaðist ég með ljáði.
Ég er annars flutt inn í íbúðina mína, hún er rosalega fín...mig vantar reyndar fleiri húsgögn og puntidót en það kemur bara með tímanum.
Hjólinu mínu var stolið meðan ég skrapp inn í búð :( svo núna er ég að leita af nýju.
Annars hefur ekki mikið meira gerst, og María Ósk er svo að koma á fimmtudag og ég get ekki beðið, það verður svaka stuð.
Jæja ætli ég verið ekki að fara að gera eitthvað af viti

Elísabet Þorvarðardóttir
Katrín Björg
 
Til hamingju með árangurinn og til hamingju með nýju íbúðina. Þú ert svo dugleg frænka! "já beta frænka mín, hún er kokkur sko" :)

Ætlar þú ekki örugglega að koma heim um jólin?
24. október 2007 klukkan 10:59
Beta
 
Hæ katrín mín, takk kærlega, til hamingju sömuleiðis með íbúðina...hlakkar rosalega til að sjá hana. Jú ég ætla sko að reyna að koma heim og vera yfir jól og áramót.
Knús Beta
24. október 2007 klukkan 17:29
Æi leiðinlegt að hjólinu þínu hafi verið stolið!
30. október 2007 klukkan 16:18

Skrifa athugasemd