Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Bévítans mý

25. september 2007 klukkan 20:13

Jæja mín bara orðin árinu eldri...Jáb bara orðin 27 ára...Ég átti alveg æðislegan afmælisdag, eða daginn fyrir. Því að ég og Simon héldum upp á afmælið mitt deginum fyrir afmælið mitt. Við byrjuðum daginn á að sofa út lengi, fórum fyrst á fætur um eittleitið. Svo fórum við að versla fyrir kvöldmatinn. Við dúlluðum okkur saman við að búa til sushi, það er mjög gaman þegar fólk nennir að hjálpa manni í eldhúsinu.
Svo var lagt á borð með kertaljós með hvítvín og flott heit. Og sko slökkt á sjónvarpinu :) Svo sátum við að borða í marga klukkutíma. Svo í dessert vorum við með bananasplitt. Svo sátum við að kjafta og sötra vín til kl 4 um nóttina. Ekkert smá kósý.
Ég fékk svo þessa fínu æfmælisgjöf frá honum, fékk geðveikt flotta friis og company tösku og geisladisk.
Svo fékk ég peninga í æfmælisgjöf frá mor og far, ömmu. Frá systrum mínum fékk ég svo kavasaki skó sem ég á eftir að kaupa :) Frábær afmælishelgi, en samt leiðinlegt að vera í burtu frá familíu og vinum.
Ohhh ég er komin með 3 mýbit og ég er ekki góð í að klóra mér ekki...hata mý!
Svo styttist bara í verklega og munnlega sveinsprófið...úff....
Unnur mín ætlar að koma á föstudag til mín og eyða með mér helgini :) Það verður æði að fá hana hingað.
Já gleymdi að segja að ég er núna komin í herbergi saman með bekkjarsystur minni, það voru svo margir að koma á skólaheimilið að núna verða allir að búa 2 saman í herbergi...gubb það er leiðinlegt, maður á ekkert privat líf, en sem betur fer er þetta bara í rúma viku.
Jæja ég er farin að klóra mér í mýbitin

Elísabet Þorvarðardóttir
Til hamingju með afmælið sæta!
26. september 2007 klukkan 15:40

Skrifa athugasemd