Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Íbúð og sveinsprófsritgerð BÚIN

17. september 2007 klukkan 19:57
JEYYYY!!!!!!!!
Þá er ég búin að skrifa lokasveinsprófsritgerðina( vá langt orð) mína. Hún átti að vera 15 siður fyrir utan aukaefni eða 25.000 anslag( veit ekki hvað það heitir á íslensku) Ritgerðin mín endaði í 25.081 eða í allt 27 síður.
Svo dagurinn í dag fór í að prenta hana út og binda saman, ég þurti að prenta hana út í 6 eintökum svo þetta tók smá tíma...
Nú er ég hálf eirðarlaus, þegar maður hefur setið stíft í heila viku að skrifa ritgerð þá finnst ég vera að svindla núna að vera ekki að læra.
En Atli og Gísli nenntu að eyða kvöldinu með mér, við fórum út í sjoppu, keyptum slik og fórum svo heim að horfa á video.
Já svo er ég komin með íbúð :) fæ hana 1 okt, en ég ætla ekki að flytja inn fyrr en sveinsprófið er búið sem er 4 okt. Eina vandamálið er að ég á EKKERT inn í hana...ekki einu sinni rúm :) Svo núna er ég á fullu á gul og gratis og kíkja á ódýrt dót.
Já og svo vantar mig bara vinnu, þá er þetta allt að koma.
Jæja ég ætla að fara snemma að sofa, vantar upp á smá svefn hjá mér
Elísabet Þorvarðardóttir
mamma
 
Hæ Elísabet mín. til lukku með að vera búin að skila ritgerðinni. Vonandi gengur restin vel og einnig atvinnuleitin.ég verð mætt í Bilka leiðangur fyrir jólin og fæ þá gistingu hjá þér.
kveðja ú fjölmenninu ú Flúðaselinu.
17. september 2007 klukkan 21:15
Elísabet
 
Takk mamma mín.
Þú ert sko meira en velkomin í bilka leiðangur, ég verð sko búin að redda gestarúmi fyrir þig. Ég passaði líka upp á að fá íbúð með gestaherbergi.
Ég bið að heilsa öllum í flúðaselinu.
Knús Beta
17. september 2007 klukkan 21:53
Til hamingju með þetta allt saman! :)
18. september 2007 klukkan 14:00
Embla
 
Til hamingju með íbúð og ritgerðaskil ;)
18. september 2007 klukkan 17:03
Elísabet
 
Takk stelpur :)
19. september 2007 klukkan 12:13
Bába
 
Til hamingju með ritgerðarskilin, íbúðina og vinnuna :) Nú er bara að rúlla upp verklega hlutanum eins og ég veit þú munt gera :)
20. september 2007 klukkan 14:30
Takk Baba min
21. september 2007 klukkan 11:06

Skrifa athugasemd