Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Svart strokleður

07. september 2007 klukkan 17:52

Þá er komin helgi enn og aftur...Svo á mánudag tekur alvaran við...Sveinsprófsverkefni, við drögum verkefnið kl 10:20 og eftir það höfum við viku til að skrifa um 30 síðna ritgerð...svo ég ætla að fara að versla á morgun og svo mun ég bara loka mig af á mánudag...nema þegar ég fer í pilates á þriðjudag. Já ég er byrjuð að æfa pilates, vá það er ekkert smá gaman og nei Þráinn þetta er ekki meðgönguleikfimi!
Svo þvi miður Katrín þá get ég ekki hitt þig í köben, því ég verð á fullu í sveinsprófverkefni.
Ótrúlega spurningar sem ég fæ alltaf af þessum blessuðu dönum, ég hlýt að ganga í hræðilegum fötum því ein stelpan í bekknum spurði mig hvort það væri hægt að kaupa alminnileg föt á íslandi...ég sagði bara nei við saumum fötin okkar sjálf, eða kaupum þau í danmörku...
Svo er ég með svart boxy strokleður eins og held ég allir þekkja á íslandi. Þetta strokleður hefur komið oftar en einu sinni í umræðu í skólanum...það hefur enginn séð SVART strokleður áður...alveg hreint merkilegt svona svart hehehe.
Í gær var svo grillveisla, það var bara fínt. Einhverjir útileikir eftir grillið og svo var bara farið á barin í kjallaranum.  Þráinn stóð sig vel á myndavélinni...kannski hann setji myndirnar á bloggið sitt ;)
Í kvöld er menningarnótt í odense, svo við íslendingarnir ætlum aðeins að kíkja.
Já ég var að fá miðannareinkunn fékk 9...sem er fínt...
Jæja þá ætla ég að tjekka á strákunum.

Elísabet Þorvarðardóttir
Ég man sko eftir svörtu Boxy strokleðrunum, maður var nú ekki kúl nema eiga eitt slíkt stykki! Iss hvað Danirnir eru þá ókúl! ;)
11. september 2007 klukkan 15:17
Helga Dögg
 
Hæ Beta, hvað er að frétta af þér? Ég var að vafra um á netinu og fann heimasíðuna þína
og mig langaði að tékka á þér. Það er svo langt síðan ég hef hitt þig og heyrt frá þér.
Ertu semsagt flutt aftur út? Hvernig er skólinn þarna úti?
En allavega vona ég að þú getir sent mér póst, en ef þú ert ekki viss hver ég er þá var ég
með þér í réttó ásamt hinum gellunum. Mig langar endilega að heyra frá þér sem fyrst.

Kv. Helga Dögg
15. september 2007 klukkan 23:05
Embla
 
Jæja!! Hvernig gekk með verkefnið?
17. september 2007 klukkan 12:48
Elísabet
 
Jóhanna: Já danir eru sko með rosa ókúl strokleður...Boxy rúlar
Helga: Gaman að þú skulir hafa rekist á mig, en ég er búin að senda þér mail :)
Embla:Heyrðu verkefnið gekk mjög vel, ég er búin að prenta það út og binda það inn, svo á morgun á ég að skila...svo ég hef daginn í dag og kvöld frí...enda er ég mega þreytt, ótrúlegt hvað þetta tekur á.
17. september 2007 klukkan 14:42

Skrifa athugasemd