Blóm afþökkuð en þeir sem vilja minnast Línu er beint á reikning minn :)
Já ég verð eiginlega að tilkynna dauða Línu( sem hét í höfuðið á henni Randalínu Emblu og Eiríksdóttir)...Þó að greyið hafi verið vellyktandi þá var hennar tími kominn. Símon kom hérna í gær og fór að ráðum Eiríks...eða gerði bara eins og allir aðrir...tók stykki klósettpappír(ekki eldhús,er nebbla ekki með eldhús) og hirti Línu og sturtaði henni niður klósettið. En eftir þessa aðgerð þá er þessi svarta fallega lína ( klessa) í loftinu eftir hana Línu.
Og já Eiríkur ég hugsa bara svo mikið að eitt herbergi dugar mér ekki...stundum fer ég meira segja fram að hugsa...:)
Annars engar fréttir nema er að fara að halda fyrirlestur á morgun, sem á að vera æfing fyrir sveinsprófið...jeyy..HATA fyrirlestra...til hvers í ósköpunum þarf ég að læra að halda fyrirlestur....langar það ekki og ætla að mótmæla.
Svo annaðkvöld er ég og Carina að fara heim til Söru (Sarah) að elda okkur saman og lesa saman fyrir prófið á föstudag.
Jæja ég ætla að fara að lúlla...
Og já Takk fyrir commentin, ég elska að fá komment :) þá fæ ég alltaf löngun til að blogga meira ;)

Annars hata ég líka að halda fyrirlestra, þvílík pynting! Ef ég verð kennari þá ætla ég að banna fyrirlestra í mínum bekk takk fyrir pent! (Nema auðvitað frá sjálfri mér ... en miðað við manneskju sem hatar að halda fyrirlestra þá veit ég nú ekki hvernig ég myndi plumma mig sem kennari ... kannski ástæðan fyrir að ég ætla mér ekkert að vera kennari ... ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég er að röfla hérna! Held að mig vanti smá blund ...!)