Veiða
08. ágúst 2007 klukkan 06:41
Ég er bókstaflega að kafna....það er alltof heitt til að sitja inn í skóla. Hvað þá í loftlausri tölvustofu. En núna er ég að leggja loka höndina á fyrirlesturinn sem ég á að flytja á morgun.
Tíminn líður bara alltof hratt hérna, það er bara að fara að koma helgi strax aftur.
Í gær eftir skóla skelltum ég og Simon okkur að veiða, það var ekkert smá fínt fyrir utan það að við veiddum ekki neitt. Ekkert smá kósý að sitja í hitanum og veiða.
Ég var svo þreytt eftir daginn að ég sofnaði kl 22 í gær :)
Núna þarf ég að fara að verða duglegari við að leita mér að íbúð og vinnu. Sérstaklega þegar tíminn líður svona hratt.
Jæja ég ætla að fara að fínpússa fyrirlesturinn minn svo að ég fái nú 12 fyrir hann.
Elísabet Þorvarðardóttir
