27 stiga hiti og heiðskýrt
Þessi helgi var heldur betur viðburðarík. Á föstudag fór ég og leigði bíl, svo að ég gæti farið til Árósa að sækja dótið mitt. Svo ég og Simon fórum í roadtrip til árósa fórum um kl 17 og vorum komin til baka um 21...Það var ótrúlega skrítið að koma til Árósa án þess að vera að hitta Guðrúnu og co.
Á laugardeginum var bílinn nýttur, ég og simon fórum með birgðir af flöskum í talningu. Seinna um daginn fór ég með Atla, Þránni og Marcus í rosengaardcenter að versla...
Ég og Þráinn skelltum okkur svo í bæinn um kvöldið, hittum þar Simon og Daniel.
Á sunnudag nýttum við okkur bílinn aftur og við skelltum okkur á ströndina því það var 27 stiga hiti og heiðskýrt...frábært veður. Simon tókst að plata mig mig í sjóinn eftir að hafa talað mig til í langann tíma. Mér fannst þessar öldur ekkert svaka heillandi...en ég lét mig hafa það. Sjórinn var reyndar frekar kaldur svo ég óð upp að maga og fór svo upp úr.
Í gærkvöldi gerðum ég og simon okkur sushi aftur :) við erum orðnir algjörir sushi meistarar. Og já Embla við þurfum að finna helgi sem við getum hisst til að gera sushi :)
Núna er ég orðin bíllaus en komin með þetta fínasta hjól :) Þvílíkur munur að vera komin með hjól.
