Norrænn matur
02. ágúst 2007 klukkan 09:28
Jæja gaman að sjá að það er einhver sem fylgist með :)
Núna er ég í skólanum, við eigum að gera verkefni í dag sem við förum svo í munnlegt próf í næstu viku í. Það er svo ekki verið að dóla við að koma manni í gang :)
En þetta verkefni sem ég valdi mér var fiskur og norænn matur, eða fiskur sem norrænn matur. Ég mun fjalla almennt um fisk, almennt um norrænnan mat og svo þetta blandað saman. Hvaða norræna meðlæti passar med fisk. Þetta er mjög spennandi verkefni, það er bara aðeins of erfitt að byrja, það er svo margt sem mig langar að fjalla um.
Í gær var ég svo í verklegu, ég átti að gera forloren and og amagerkoteletter. Það gekk bara vel, nema ég gerði sömu vitleysu eins og allir hinir að ég var með alltof mikla sósu með amagerkoteletten.
Jæja nóg um skólann, í dag ætla ég í bæinn eftir skóla. Ég þarf að stússast í pósthús og svoleiðis. Í kvöld er ég og simon að fara að gera okkur sushi, með hvítvíni og alles, svaka huggó :)
Á morgun er svo förinni heitið til Árósa að sækja langþráð hjól, sem Guðrún systir var svo sæt í sér að lána mér :) takk Guðrún. Svo er ég að fara að sækja skólabækurnar mínar.
Jæja held að það sé best að halda áfram með verkefnið mitt...svo að ég fá ekki -3 ( já það er kominn nýr einkunnarskali í dk, segi meir frá honum seinna)

Elísabet Þorvarðardóttir