Auglýsing

Atburđarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Ţorvarđardóttir
  • Stađur: Danmörk
  • Annađ: Ég er bara lítil dökkhćrđ stelpa. Ég bý i bć H.C. Andersen og er ađ vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Carapulka

31. júlí 2007 klukkan 16:28

Hæ allir...jæja ég er þá enn og aftur byrjuð að blogga. Ákvað að byrja aftur svo að þeir heima á íslandi geti frétt af mér á loka önn minni í skólanum :)
Ég kom til Danmerkur á sunnudag, var samferða Þránni frá Íslandi.
Það er ótrúlega skrítið að vera komin aftur hingað. Ég er sem betur fer ein í herbergi :) það eru reyndar voða fáir mættir á heimavistina, vona bara að það haldist svona.
Ég hef voða lítð merkilegt gert síðan ég kom hingað, jú ég fór og keyptir handklæði og sængurföt ;)
Ég var svo í verklegu í dag, mér gekk bara vel, ég átti að gera rétt sem heitir carapulka ( pottréttur með svínakjöti, pulsum, bacon) voða eitthvað gamaldagsréttur. Svo hinn rétturinn sem ég gerði var svínakótiletta með pommes sautes...sósan var ekki alveg eins og ég vildi, ég er reyndar rosa léleg í sósugerð.
Jæja ég ætla að fara að veiða kóngulær...bið að heilsa adios
og endilega skilið kveðjum á mig ;)

Elísabet Ţorvarđardóttir
Bába
 
Jeyyyy blogg frá Betu... Gott að geta fylgst svona með :)
31. júlí 2007 klukkan 19:45
Guđrún Erla
 

Líst vel á það að þú bloggir á meðan þú ert þarna úti. Kemuru svo bara ekki fljótlega heim;)
Risastórar saknaðarkveðjur
Guðrún Syss
01. ágúst 2007 klukkan 22:06

Skrifa athugasemd