Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Þorvarðardóttir
  • Staður: Danmörk
  • Annað: Ég er bara lítil dökkhærð stelpa. Ég bý i bæ H.C. Andersen og er að vinna sem kokkur á Hóteli.

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Íslandsferð

12. ágúst 2008 klukkan 13:34

Komin aftur til Odense og hversdagsleikinn er tekinn við...
Ég var semsagt í sumarfríi í 2 vikur heima á íslandi, ég gerði alveg ótrúlega margt, nenni ekki að segja frá því í smáatriðum, og þar sem að ég þjáist af krónisku minnisleysi þá man ég líklegast ekki allt.
En hér er fríið í hnotuskurn:
#Fór á Kano og Kajak á Hafravatni
#Fór upp í bústað yfir versló, elska að vera þar
#Fór á Hestbak
#Hitti Unni og Bábu og við heldum stelpukvöld, sáum mamma mia og fórum út að borða
#Hékk með systrum mínum
#Fór í matarboð til Katrínar frænku, sem eldaði æðislegt pasta
#Fór austur til Elsu systir mömmu
#Og slappaði af fullt :)

Þessar tvær vikur voru bara alltof fljótar að líða...svo ætla ég að reyna að fara til ísland yfir jól.
Ég ákvað að taka með mér mysing, vogaídýfu og pylsur heim frá íslandi. En þar sem að ég þjáist að krónisku minnisleysi og mamma var ekki heima þegar ég fór, þá gleymdi ég þessu öllu í ísskápnum heima hjá mömmu og pabba. Og Svo gleymdi ég náttúrulega gallajakkanum mínum heima hjá Katrínu, svo ég held í hefðina að gleyma hlutum heima á íslandi.
Jæja ég ætla að fá mér eitthvað að borða áður en ég gleymi því.
Endilega commenta svo, annars finnst mér að enginn lesi þetta :)

Elísabet Þorvarðardóttir
5 athugasemdir

30 stiga hiti og skínandi sól

26. júlí 2008 klukkan 18:32

Úfff...það er alltof heitt...í dag var 30 stiga hiti, og ég var að vinna. Það er ekki gott að vera að vinna inn í heitu eldhúsi með 6 eldahellur á fullu og 30 stiga hiti úti og við erum í glerbygingu. Svo ég alltaf ef ég þurfti að fara niður í frystinn þá tók ég mér alltaf góðann tíma þar :)
Við fengum svo ágætan slatta af vespum inn til okkar, ég er bara skíthrædd við þær svo ég fékk strákana til að drepa þær fyrir mig.
Drakk líka marga lítra af vatni í dag, held að ég hafi svitnað helminingnum.
 Núna er ég komin heim úr vinnu og það er ekki betra hér inni...ég er með alla glugga galopna...það fer vonandi að kólna aðeins núna þegar það er komið kvöld.
Svo í síðustu viku fór ég til augnlæknis til að sjá hvort að ég geti farið í laseraðgerð, og ég get það :) Eina er að ég er með frekar stór sjáöldur svo að kvöldsjónin gæti truflast smá, en það eru bara litlar líkur. Svo núna vantar mig bara 300 þús :) ef einhverjum langar að losna við þann pening þá má hinn sami alveg gefa mér þann pening :)
Ég er svo að koma heim til ísland á mánudagskvöld...og verð í heilar 2 vikur, ég er enn með sama síma heima ;)
Jæja ég ætla að hoppa í ískalda sturtu til að kæla mig aðeins.

Elísabet Þorvarðardóttir
Engin athugasemd

Internet gella

03. júlí 2008 klukkan 16:15
Til hamingju Beta!!!
Þá hef ég gerst internet eigandi...var orðin net pirruð á að netið hjá nágrönnunum var ekki að virka alltaf :) ég nefninlega "stal" þráðlausu neti hjá fólki hér í kring....
Annars er sumarið komið aftur, danir kalla það ekki sumar hér nema það sé yfir 25 stiga hita...iss...vanþakklætið í þeim.
Annars er nóg að gera hjá mér...að vinna 37 tíma á viku hehehehe og leika mér restina. 
Ég var með sjúkling niðrí vinnu um daginn sem má alls ekki fá neitt salt í matinn, og vá hvað það er erfitt að fá mat til að bragðast alminnilega án salt. Ég reyndi að nota allskonar krydd...það var verst með sósurnar, því að ég gat ekki notað soð, því það er salt í því. Svo ég var að búa til sérsoð mínus salt = bragðlaust. Svo setti ég pipar og allskonar krydd...en það vantaði alltaf þetta ekstra semsagt saltið. En þessi sjúklingur var æði, hann þakkaði mér alltaf fyrir matinn og í dag var hann útskrifaður og kom og kvaddi mig.
Svo var ég með annann sjúkling sem má liggur við ekkert borða, ekki mjólkurafurði, ekki lamb, ekki sjávarafurði...og margt fleira.
Svo á hverjum degi fæ ég að gera alls konar mat. Svo vantar okkur kokk frá 1.sept til janúar með möguleika á fastráðningu...ef einhverjum vantar vinnu ;)
Jæja ég ætla að fara að hjóla út í búð þó að ég nenni því ekki í þessum hita, langar bara að liggja í inni í skugganum. En maður verður víst að borða :)
Knús á alla
Elísabet Þorvarðardóttir
1 athugasemd

Margt að gerast

27. júní 2008 klukkan 11:58

Þá er loks komin tími til að blogga.
Það er margt að frétta af mér...laugardaginn 7.júni missti ég elsku ömmu mína. Sakna hennar á hverjum degi,  hún var besta amma í heimi.
Vegna fráfalls hennar þá fór ég heim til íslands 13 júni og var fram til 22 júni.
Þetta voru erfiðir dagar að kveðja hana en það var gott að koma heim til fjölskyldunar og vera hjá þeim á þessum dögum.
Það var margt að gera þessa daga heima, 17.júní hélt Kristján frændi og Jóna kona hans opið hús vegna brúðkaups þeirra fyrr í mánuðinum, sama dag varð Björg systir mömmu 60 ára svo við kíktum í æðislega veislu til hennar.
16 júni átti unnir svo afmæli og þar sem var boðið upp á allskonar drykki og áfengt hlaup...en ég var ekki alveg í stuði til að skemmta mér svo ég stoppaði stutt.
Síðustu daga mína á íslandi kíkti ég með mömmu, pabba og Maríu upp í bústað og það er svo gott að koma upp í bústað, vildi óska að ég gæti farið þanngað hverja helgi.
Svo flaug ég heim 22 júni, mamma og pabbi keyrðu mig upp á flugvöll mjög snemma morguns(mætti kalla það nótt). Ég kveð mömmu og pabba og segji við mömmu að ég hafi verið að fylla á inneignina á símann svo ég myndi hringja seinna. Ég fer upp í fríhöfn, kíkji í búðir og dúlla mér. Svo ákvað ég að setjast niður og hringja í mömmu...en nei þá fattaði ég það að ég hafði skilið símann minn eftir í baksætinu í bílnum hans pabba...svo ég fór að leita að næsta tíkallasíma, sem var ekki auðvelt þar sem enginn notar svoleiðis lengur. Fann hann á endanum og hringji í mömmu. Þau bjóða mér að snúa við ( þau voru komin langt til reykjavíkur). Þau snúa við og mamma hleypur með símann inn, og strákarnir í öryggislhliðinu taka við símanum og rétta mér hann...Úff það er ótrúlegt að maður gat ferðast áður án þess að eiga gsm síma.
Núna er ég komin til baka til odense, embla kíkti til mín í gær og við skelltum okkur á Sex and the city í bíó, mjög fín mynd.
Svo er ég að fara að vinna um helgina....verkfallið hætt svo allt komið á fullt aftur.
Simon var að klára síðasta prófið í dag, hann er að taka bacholor í stjórnmálafræði með sögu, og hann er búinn að fá 2 einkunnir hann fékk 12 og 10 (12 er hæðsta einkunn og 10 næsthæðsta) svo honum hefði ekki getað gengið betur.
Jæja ég ætla að reyna að gera eitthvað að viti í dag....og reyna að vinna á þessa smá heimþrá sem er aðeins að angra mig.

Elísabet Þorvarðardóttir
Engin athugasemd

Everest

28. apríl 2008 klukkan 19:50
Ef ég væri ótrúlega hugrökk þá myndi ég klífa Mount Everest!
Elísabet Þorvarðardóttir
3 athugasemdir

Paradis ís og sumar

26. apríl 2008 klukkan 17:23

Þá er sumarið komið. 17 stiga hiti í gær og á morgun á að fara yfir 20 stiga hita...Fyrir mér er það sumar þó að danir segja að það sé bara vor...Þó að ég hafi hangið svona lengi í danmörku þá hef ég ekki verið yfir heilt sumar síðan ég og Embla vorum í holstebro árið 1998 minnir mig.
En síðustu helgi komu Unnur og Embla til mín og gistu eina nótt. Ekkert smá gaman að hafa þær, við vorum bara eins og í gamla daga, leigðum dvd, keyptum nammi og slöppuðum af. Kynntumst íslending út í Fakta...hehehe.
Það var svo gaman að hafa þær að ég vildi að þær gætu bara alltaf verið hér :) Og Embla það er dýralæknastofa í næstu götu :) "blink blink"
Því það er svo gott veður og það er laugardagur, þá fór ég út áðan og keypti besta ís í heimi. Paradís ís...nammm.
Svo styttist í að María Systir komi. Hún kemur 17 mai og fer heim 30 mai. Get ekki beðið eftir að hún kemur, þá verða daglegar ferðir út í paradís ís...hehehe.
Jæja ég ætla að fá mér að borða svo að ég geti fengið mér ís í dessert, eða ætti ég kannski bara að fá mér ís í matinn :)

Elísabet Þorvarðardóttir
1 athugasemd

Þjófur

11. apríl 2008 klukkan 18:37

Úff hvað ég er búin að vera dugleg í dag. Kom beint heim eftir vinnu og fór að þvo þvott og ákvað svo að taka íbúðina alminninlega í gegn...ryksugaði loftið eins og venjulega. Það kemur alveg ótrúlega hratt kóngulóavefur hér...og ég sé einstaka sinnum kónguló. Ég er viss um að um leið og ég sofna þá fara þær á fullt og spinna vef út um allt. Ógeð.
Ég á mér víst leynda þjófa hlið. Því í vikunni þá vaknaði ég upp um miðja nótt og sagði við Simon á dönsku : "Ertu með?" og hann sagði :"ha?, hvað ertu að tala um" ég: " Ertu með í að ræna búðina?" hehehe já og ég man ekkert eftir þessu. 'Eg stunda þetta víst að tala upp úr svefni en þetta er það fyndnasta sem ég hef heyrt að ég hafi sagt.
Ég hef víst gert ótrúlegustu hluti eins og pilla myndir niður af vegg, skrúað peru úr lampa...og ég man ekkert eftir því þegar ég vakna. Pínu óhugnanlegt.
Ég hef það frábært í nýju vinnuni, á þriðjudag var ég beðin að vera eftir vinnu og vera með í að stjórna Bingo :) ég átti víst að tjekka þegar fólk kallaði bingo, þá átti ég að fara til sjúklilngsins og átti að kalla tölurnar upp svo stjórnandinn gæti tjékkað hvort allt væri rétt. það var fínt, og eins gott að vera með tölurnar á hreinu :)
En það var rosalega gaman að fá að vera með í félagslífi sjúklingana, þá kynnist maður þeim betur sérstaklega þeim sem eru hjá okkur í nokkra mánuði.
Jæja ég ætla að hlúnka mér fyrir framan tv með hindberjacola og hafa það kósý.
 

Elísabet Þorvarðardóttir
6 athugasemdir

Vorið er komið :)

04. apríl 2008 klukkan 13:35
Jæja ætli það sé ekki komin tími til að blogga :)
Ég er semsagt ennþá í odense fyrir þá sem ekki vita. Er að vinna á hóteli, einskonar sjúklingahóteli. Æðisleg vinna...frábær vinnutími.
Ég fór heim til íslands yfir páska. Fór í brúðkaup hjá Unni og Danna :) til lykku til þeirra aftur :)
Fór í eitt fjölmennasta barnaafmæli sem ég hef verið í, æðislega góðar kökur :) Rosa gaman að fá að hitta svo marga í einu.
En vorið er komið hingað, hitin hefur farið allt að upp í 16 gráður...vonandi að þetta haldist.
Svo er ég ennþá með aukadýnur og aukasængur handa þeim sem vilja koma í heimsókn.
Byrja bara með svona stuttu bloggi til að byrja með...
Ég hef það allavega rosalega gott, vona að þið hafið það líka svona gott.
Elísabet Þorvarðardóttir
2 athugasemdir

Gamlárskveld

01. janúar 2008 klukkan 00:10
Gleðilegt Nýtt ár!!!!!!!
Ætli ég geti ekki kallað mig sjálfstæða núna. Sit núna ein heima og klukkan er 3 mínútur yfir miðnætti á gamlárskvöld.(á íslenskum tíma) Ekki það, að það sé gaman að vera ein á gamlárs, en ég var að vinna í dag, við vorum með 180 manns í galadinner. Mjög gaman að vinna í dag, reyndar var þetta síðasti dagurinn minn þarna. Ég var búin að vinna kl23:30 og náði lestinni stuttu eftir þar, svo ég upplifði danskt gamlárskvöld í lestinni, frekar spes. 
Svo var ég komin til odense hálf eitt, svo ég fékk að hjóla heim með rakettur á hælunum og sveigandi frá kampavínsflöskum á götunni. Held að ég muni aldrei upplifa eins spes gamlárskvöld eins og þetta. Svo núna sit ég bara að horfa á madonnu tónleika með ristað brauð og kakómalt....umm góður gamlársmatur ;)
Á morgun ætla ég svo að hafa nýársmat fyrir mig, ég er með hangikjet frá íslandi :) gleymdi því miður ora baununum.
Jæja ég ætla að fara að halda upp á gamlárskvöld hehehehe
Takk fyrir gamla og þið eruð öll frábær :) knús
Elísabet Þorvarðardóttir
5 athugasemdir

Jólabakstur og myrkur

20. desember 2007 klukkan 12:58
Þá er ég komin heim til íslands :)
Æðislegt að vera komin í jólafrí, get sofið út og gert það sem mér hentar allann daginn :) Bara ef lítið væri alltaf svona.
Það er æðislegt að vera komin heim, þó að það sé myrkur allann daginn, skil það ekki, hefur alltaf verið svona dimmt á íslandi í desember...En það er bara kósý, maður sefur fram að hádegi...og svo situr maður í myrkrinu með jólaljósin kveikt :)
Ég er að baka núna, er að baka lakkrískurlkökur....nammm
Ég tók mynd af hjólinu mínu, ég set núna á eftir myndina í albúmið....æðislegasta hjól í heimi,það liggur við að ég setist upp á það og það renni af stað, finn ekki fyrir því að það er ég sem hjóla.
Annars hef ég bara verið að vinna sem brjálaðingur í dk....
Ég fer heim til dk 27 des svo þeir sem vilja hitta mig þá er ég með gamla númmerið mitt...;)
Knús til allra
Elísabet Þorvarðardóttir
1 athugasemd